Stuðningur við gæðamál fiskimála
Heiti verkefnis - svið:
Stuðningur við gæðamál fiskimála (Support to Quality Assurance for Fish Marketing Project) - fiskimál
Samningur og samstarfsaðilar:
Samstarfsaðili verkefnisins er ráðuneyti landbúnaðar, dýraiðnaðar og sjávarútvegs (Ministry of Agriculture, Animal Industry and Fisheries).
Verkefnið hefst formlega 1.september 2008.
Lýsing og markmið:
Yfirmarkmið verkefnisins er að draga úr fátækt meðal fiskimannasamfélaga með því að auka tekjur íbúanna. Með auknum gæðum og öryggi fiskafurða er reiknað með að verðmæti aukist og að viðskipti með fiskafurðir eflist, bæði á innanlandsmarkaði sem og í gegnum útflutning. Með betri gæðum og auknu öryggi fiskafurða má bæta lífsgæði þeirra sem neyta og selja fisk. Jafnframt verður dregið stórlega úr sóun verðmæta vegna lélegra meðhöndlunar á afurðum í ferlinu frá veiði til neyslu.
Með markvissri þjálfun og bættum aðbúnaði opinberra eftirlitsaðila með veiðum og vinnslu fiskafurða er gert ráð fyrir að bæta megi verklag í greininni. Í verkefninu er gert ráð fyrir að styrkja aðstöðu eftirlitsmanna ráðuneytisins, þekkingu þeirra og möguleika til að sinna hlutverki sínu. Byggð verður upp aðstaða fyrir þá í Kampala, skrifstofa ásamt tækjum og tólum sem til þarf, og tryggðir verða möguleikar þeirra á að komast til þeirra staða sem fylgjast þarf með. Eftirlitsmenn fá einnig þjálfun í kennslu og þjálfun til að bæta þekkingu innan fiskigeirans. Þá verður útbúin handbók með verklagsreglum sem lúta bæði að verkun fiskafurða og fiskeldi.
Aðstaða eftirlitsaðila í héraði verður jafnframt stórbætt með aðstöðu, tækjum og tólum ásamt bættri menntun og þjálfun. Ríkisstjórn Úganda hefur beitt sér fyrir stofnun félaga sem munu sjá um stjórnun fiskveiða í Úganda (Beach Mangement Unit). Aðstaða þessara félaga verður stórbætt til að auka möguleika á að ná til hópsins sem mikilvægast er að breyta bæði hugafari og verklagi hjá, það er sjómanna. Sjómenn munu verða aðilar að slíkum félögum (Beach Mangement Unit) og verður hægt að ná til þeirra í gegnum þau.
Gert er ráð fyrir að allt verklag fyrir eftirlit og skráningu gagna muni uppfylla kröfur markaða, s.s. Evrópusambandsins (EU). Skrifstofa eftirlitsins (Competent Authority) verður eins og fyrr segir í Kampala, en hingað til hafa eftirlitsmenn verið í Entebbe. Gert er ráð fyrir að hægt verði að vista öll gögn eftirlitsins þar og sett verður upp viðbragðskerfi að kröfu ES (Rapid Alert System center).
Í stuttu máli má segja að með aukinni þekkingu aðila greinarinnar megi draga stórlega úr sóun og auka tekjur. Jafnframt en vonast eftir að breyta hugarfari hagsmunaaðila og auka skilning þeirra á þörfum viðskiptavina sinna.
Framvinda - úr ársskýrslu 2010:
Ný „þróunar- og fjárfestingaáætlun 2010/11 – 2014/15“ fyrir landbúnaðar- og fiskimálageirann tók gildi árið 2010. Þessi áætlun er leiðbeinandi fyrir aðgerðir ríkisins og aðra þá sem veita stuðning inn í þessa geira, þ.á m. ÞSSÍ. ÞSSÍ hefur stutt fiskiauðlindadeild landbúnaðar- og fiskimálaráðuneytisins í mörg ár. Í núgildandi þróunar- og fjárfestingaáætlun eru taldar upp ýmsar aðgerðir í fiskimálageiranum sem þróunarstarfið mun beinast að á næstu fimm árum.
Þessar aðgerðir eru: efling gæðatryggingar og gæðastjórnunar fiskframleiðslu; efling reglugerða um fiskveiðar og stjórnun þeirra: aukinn afli og þróun; aukning fiskeldis og stjórnun þess; aukinn söfnun og áreiðanleiki upplýsinga um fiskveiðar, vinnslu, birgðir og nýtingu afla. Stuðningur ÞSSÍ við geirann fellur allur innan þessara aðgerðasviða.
Stuðningur við verkefni um gæðavottun fyrir markaðssetningu fiskafurða
Yfirmarkmið fimm ára verkefnis um gæðavottun fyrir markaðssetningu fiskafurða er að draga úr fátækt meðal íbúa fiskimannasamfélaga með auknum gæðum og öryggi fiskafurða fyrir markaði jafnt á staðar- og landsvísu og á útflutningsmarkaði. Einnig er því ætlað að bæta almenna lífsafkomu íbúa byggða sem eiga allt undir fiskveiðum. Meginmarkmið verkefnisins er að auka afla sem fer á markað, bæði innanlands og utan með því að draga úr aflarýrnun og auka gæði. Verkefnið nær til Ntoroko, Hoima, Buliisa og Nebbi héraða við Albertsvatn og Nakasongola, Apac, Amolatar, Soroti og Buyende héraða við Kyoga-vatn.
Verkefnisþættir sem unnið var að á árinu 2010 voru m.a. þjálfun ríflega 400 leiðbeinenda og umsjónarmanna frá öllum níu samstarfshéruðunum, bæði fiskimálafulltrúa og fólks úr strandstjórnunarnefndunum. Alls hafa verið þjálfaðir leiðbeinendur fyrir 105 strandstjórnunareiningar. Tvær héraðsskrifstofur fiskimála voru byggðar á árinu, í Buyende og Buliisa. Fyrstu tveir löndunarstaðirnir með hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu voru reistir, einn við hvort vatn, í Kaye í Apac-héraði og í Ntoroko í Ntoroko-héraði. Opinber gagnagrunnur gæðavottunar fiskveiða í landinu var þróaður og settur upp í aðalskrifstofu fiskiauðlindadeildarinnar í Entebbe. Í lok ársins var verkefnið komið fram úr áætluðum markmiðum í öllum aðgerðum þrátt fyrir nokkrar tafir yfir árið.
Stuðningur við stutt námskeið um fiskeldisstjórnun
Miklir möguleikar liggja í fiskeldi í Úganda og fiskeldi er eitt þeirra sviða sem áhersla hefur verið lögð á í nýjum áætlunum, þróunaráætlun ríkisins og þróunar- og fjárfestingaáætluninni. Samkvæmt skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) um stöðu fiskveiða og fiskeldis í heiminum hefur fiskeldisframleiðsla Úganda vaxið einna hraðast á heimsvísu á síðustu árum. Með tilliti til þessa studdi ÞSSÍ þróun og uppsetningu stuttra námskeiða um fiskeldisstjórnun í samvinnu við fiskveiðifræðsluverkefni Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, Háskólann á Hólum og Rannsókna- og þróunarmiðstöð fiskeldis (NAFIRRI). Námskeiðið var haldið í Úganda
í september og það sátu 30 fiskeldisbændur og sérfræðingar í fiskeldi. Námskeiðið mætti brýnni þörf fyrir aukna tækniþekkingu við þróun og stjórnun fiskeldis í Úganda og þátttakendur gáfu námskeiðinu skínandi matseinkunn.
Áætluð verklok:
Áætluð verklok eru í september 2013.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is