Samstarfslönd og verkefni
Samstarfslönd ÞSSÍ eru fjögur Afríkuríki, Malaví, Mósambík, Namibía og Úganda, en þróunarsamvinnu við Namibíu lýkur í lok árs 2010.
ÞSSÍ á eitt samstarfsland Mið-Ameríku: Níkaragva. Umdæmisskrifstofunni var þó lokað árið 2009 því í kjölfar efnahagshrunsins hætti ÞSSÍ þróunarsamvinnu við landið. Eitt verkefni er þó enn í gangi, jarðhitaverkefni, sem lýkur árið 2012.
Árin 2005-2009 var Srí Lanka samstarfsland ÞSSÍ, en í kjölfar efnahagshrunsins lauk starfsemi stofnunarinnar í landinu.
Nánari upplýsingar um samstarfslönd og verkefni ÞSSÍ má finna með því að smella á tenglana hér til hliðar.
Nánari upplýsingar um þróunarsamvinnu á vegum ÞSSÍ má lesa í útgefnu efni.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is