Úttektir og mat á verkefnum
Öll þróunarverkefni ÞSSÍ eru metin reglulega og í öllum verkefnissamningum eru ákvæði þess efnis. Hvorum samningsaðila um sig er heimilt að gera á eigin kostnað innri úttekt á verkefnunum. Telji annar samningsaðili að slík úttekt sé nauðsynleg er hinum aðilanum tilkynnt um það og er skylt að láta í té þær upplýsingar um verkefnið sem á þarf að halda fyrir matið. Leiði slík innri úttekt í ljós bresti í viðkomandi verkefni eða vanefndir annars hvors aðila eru slíkar niðurstöður teknar fyrir á formlegum fundi yfirstjórnar verkefnisins og leiða til úrbóta leitað.
Úttektir óháðra aðila eru gerðar á kostnað verkefna með reglulegu umsömdu millibili (t.d. þriðja hvert ár) og ávallt þegar þeim lýkur. Slíkum úttektum er ætlað að leiða í ljós hvort markmið verkefnanna hafa náðst og hvort áætlanir hafi staðist. Leiði slík úttekt í ljós að tilætluðum markmiðum hafi ekki verið náð eða áætlanir ekki staðist, skulu úttektaraðilar gera grein fyrir ástæðum þess og koma með tillögur hvort úr megi bæta og þá hvernig. Óháðir úttektaraðilar skulu vera a.m.k. tveir, annar tilnefndur af ÞSSÍ og hinn af viðeigandi stjórnvaldi samstarfslandsins. Að jafnaði skulu valdir einstaklingar eða fyrirtæki sem hafa sérþekkingu á viðkomandi verkefnasviði, auk þekkingar eða starfsreynslu frá löndum sem sambærileg eru því landi sem verkefnið er unnið í.



Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is