Samþykkt hafa verið þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun

Sameinuðu þjóðirnar samþykktu svonefnd ,,Þúsaldarmarkmið um þróun’’ á allsherjarþingi stofnunarinnar í september árið 2000. Aðilar að samkomulaginu hétu því að vinna í sameiningu og með markvissum hætti að þróunarverkefnum til að auka lífsgæði íbúa í verst settu ríkjum heims. Stefnt er að því að markmiðum samkomulagsins verði náð fyrir árið 2015.

Börn í Mósambík

Með ,,Þúsaldarmarkmiðum um þróun’’ er einkum stefnt að eftirfarandi þáttum:

 

1. Að útrýma fátækt og hungri í heiminum með því að fækka um helming þeim fjölda jarðarbúa sem býr við sára neyð og óviðunandi aðstæður.

 

2. Að tryggja menntun á grunnskólastigi fyrir öll börn, bæði stúlkur og drengi.

 

3. Að jafna stöðu kynjanna í skólum og auka almenn réttindi kvenna.

 

4. Að draga úr barnadauða, lækka hlutfall þeirra sem deyja fyrir fimm ára aldur um tvo þriðju frá því sem nú er.

 

5. Að efla mæðravernd og lækka dánartíðni kvenna í barnsnauð um þrjá fjórðu.

 

6. Að segja HIV/AIDS, malaríu og öðrum alvarlegum smitsjúkdómum stríð á hendur, stöðva útbreiðslu þeirra og snúa vörn í sókn.

 

7. Að stuðla að sjálfbærri þróun og auka aðgengi að hreinu vatni.

 

8. Að efla hnattræna samvinnu í þróunarmálum með markvissum hætti.

 

Leiðtogar þeirra ríkja sem aðild eiga að samkomulaginu munu koma saman á næsta ári til að skoða framvindu málsins og meta árangur starfsins til þessa.

 

Lestu nánar um þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica