Mæðrahúsið í Engela tekið í notkun

7.12.2009

Mæðrahúsið í Engela
Mæðrahúsið í Engela
Aðstæður þungaðra kvenna í grennd við Engela gjörbreytast með tilkomu mæðrahússins. Ljósmynd: Vilhjálmur Wiium.
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Penehupifo Pohamba forsetafrú Namibíu tók á dögunum formlega í notkun nýtt mæðrahús í Engela í Ohangwena-sýslu en Íslendingar, bæði Þróunarsamvinnustofnun Íslands og gestir á Ljósanótt í Reykjanesbæ, lögðu fram fjármagn fyrir þriðjungi kostnaðarins. Fjáröflun var hleypt af stokkunum snemma árs 2007 eftir að Vilhjálmur Wiium umdæmisstjóri ÞSSÍ í Namibíu ók fram á þungaðar konur sem höfðust við undir tveimur trjám við þjóðveginn við óboðlegar aðstæður.

“Í Engela er eini spítali sýslunnar en í henni búa um 230 þúsund manns og þangað koma verðandi mæður hvaðanæva að úr sýslunni,” segir Vilhjálmur. “Einkum sækja konur sem óttast vandamál við fæðingu eftir að fæða á spítalanum. Hins vegar gat spítalinn vegna plássleysis ekki tekið við konunum fyrr en hríðir hófust. Því höfðust þungaðar konur við undir tveimur trjám í nágrenni spítalans. Iðulega voru þar um þrjátíu konur að því komnar að fæða. Máttu þær hafast þar við, elda sér mat á hlóðum, ganga þarfa sinni bakvið nærliggjandi runna og sofa á nóttunni undir trjánum. Þótt í Afríku sé, þá verður oft kalt á næturna og eins gerir úrhellisrigningar yfir sumarmánuðina. Allir sáu að þetta var ekki boðlegt og eftir umræður og bollaleggingar var hafist handa við að safna fjármunum til húsbyggingar. Sýslustjóri Ohangwena-sýslu, Usko Nghaamwa, bað forsetafrú landins, frú Penehupifo Pohamba, að vera verndari átaksins og varð hún við beiðninni.”

Vilhjálmur segir að til að bæta aðstæður verðandi mæðra í bænum hafi fjáröflun hafist og margir hafi lagt hönd á plóginn, ýmis fyrirtæki og stofnanir á svæðinu hafi gefið fé og ýmsan búnað. “Einnig stóð Reykjanesbær fyrir fjáröflun á Ljósanótt árið 2007, en þar söfnuðust 300 þúsund krónur sem runnu til byggingar mæðrahússins. Þróunarsamvinnustofnun Íslands lagði einnig til fé og alls nam framlagið frá Íslandi um þriðjungi af heildarkostnaði hússins,” segir hann.

Að sögn Vilhjálms urðu ýmsar tafir á byggingunni, einkum vegna flóða sem urðu bæði í ársbyrjun 2008 og einnig 2009. Nú er húsið hins vegar tilbúið til notkunar með átta gististofum fyrir 60 konur. Vilhjálmur segir að þar sé eldunaraðstaða og góð hreinlætisaðstaða með sturtum. Ennfremur er í húsinu aðstaða til að veita mæðrum ráðgjöf um fæðingar og umönnun barna.

Forsetafrúin, frú Pohamba opnaði húsið við hátíðlega athöfn á dögunum. Í ræðu sinni lagði hún áherslu á samfélagslega ábyrgð íbúa sýslunnar. Styðja þyrfti vel við bakið á verðandi mæðrum og ekki síður börnunum eftir að þau fæðast í heiminn. Einnig nefndi hún sérstaklega þátt feðra og ábyrgð þeirra. Hún benti á að börn eru ekki eingetin og feður þurfi að veita barnsmæðrum sínum allan þann stuðning sem þær þurfa. Frú Pohamba lýsti yfir þakklæti til þeirra sem stutt hefðu byggingu hússins og bað umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar að koma til skila innlegu þakklæti sínu fyrir þann stuðning sem almenningur og stjórnvöld á Íslandi hefðu veitt.

“Mikið fjölmenni var við opnunina og boðið var upp á ýmis dansatriði að hætti Namibíumanna. Greinilegt er að íbúum sýslunnar þykir fengur að mæðrahúsinu. Fimm ráðherrar og aðstoðarráðherrar voru viðstaddir en þeir ólust allir upp í sýslunni. Að lokum má geta að lóð sú sem húsið stendur á var gefin til verkefnisins af háaldraðri konu og lýsir sú gjöf kannski best hversu mikilvægt húsið er í augum íbúa svæðisins,” segir Vilhjálmur Wiium.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica