Lagt til að fjárframlög til þróunarsamvinnu verði skert um tæpar 1700 milljónir
Samkvæmt hagræðingartillögum utanríkisráðuneytis verða framlög til þróunarsamvinnu skert um 1666 milljónir króna á næsta ári sem er rúmlega 32% niðurskurður frá fjárlagafrumvarpi ársins 2009. Af þessari upphæð verða framlög til Þróunarsamvinnustofnunar Íslands lækkuð um 777 milljónir króna frá því sem fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir.
Á fundi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra með fréttamönnum kom fram að áformað var að opinber þróunaraðstoð Íslendinga yrði 0,35% af vergum þjóðartekjum á árinu 2009 en hún fer niður í 0,24% gangi tillögurnar eftir. Af fjórum sendiskrifstofum sem lokað verður á næsta ári er ein umdæmisskrifstofa Þróunarsamvinnustofnunar, í Kolombo á Srí Lanka. Fyrirhugað er að hætta starfseminni þar um mitt næsta ár þegar öllum verkefnaskuldbindingum er lokið.
Tillögur til sparnaðar í úttgjöldum Þróunarsamvinnustofnunar fela í sér að engar nýjar skuldbindingar verða gerðar á næsta ári en hins vegar verður staðið við allar skuldbindingar í samstarfslöndum sem þegar hefur verið skrifað undir.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is