Namibía: Fullorðinsfræðsla meðal heyrnarlausra og táknmálsnám í kennaraskólanum

15.1.2009

Fullorðinsfræðsla fyrir heyrnarlausa
Fullorðinsfræðsla fyrir heyrnarlausa
Táknmálsverkefni ÞSSÍ í Namibíu er unnið i samsvinnu við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi. Nú er að hefjast fræðsla fyrir fullorðna heyrnarlausa í Namibíu. Ljósmynd: Davíð Bjarnason.

Í þessum mánuði verður hleypt af stokkunum fullorðinsfræðslu fyrir heyrnarlausa í Namibíu en það er hluti af táknmálsverkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í samvinnu við menntamálaráðuneyti Namibíu. Ennfremur hefur verið ákveðið að ÞSSÍ styðji Kennaraskólann í höfuðborginni Windhoek í viðleitni hans við að bjóða táknmál sem valgrein fyrir kennaranema. Ráðið hefur verið í stöðu lektors sem tekur til starfa í þessum mánuði.

“Mikilvægur árangur hefur náðst á síðastliðnum mánuðum í táknmálsverkefninu,” segir Davíð Bjarnason verkefnisstjóri félagslegra verkefna ÞSSÍ í Namibíu. Hann segir markmið verkefnisins einkum felast í því að styrkja stöðu táknmáls og styðja við menntun heyrnarlausra í landinu. Nú séu að hefjast með formlegum hætti nýir verkþættir sem voru í undirbúningi á síðasta ári.

Davíð segir um fullorðinsfræðsluverkefnið að í Namibíu hafi meginþorri fullorðinna heyrnarlausra ekki haft aðgang að neinni menntun og þeir séu oft á tíðum án tungumáls og þannig einangraður í samfélaginu. “ Í þessum verkþætti verða átta heyrnarlausir leiðbeinendur þjálfaðir til að takast á við táknmáls- og læsiskennslu fullorðinna í samræmi við námsáætlun namibískra yfirvalda í fullorðinsfræðslu sem þó verður aðlöguð nokkuð að sérstökum aðstæðum heyrnarlausra. Flestir hafa leiðbeinendurnir áður fengið þjálfun hjá Júlíu Hreinsdóttur í táknmálskennslu og því er hér byggt á traustum grunni þeirrar þjálfunar. Hér verður um mikilvægan hlekk að ræða í að aðstoða namibísk stjórnvöld í þeirri viðleitni að tryggja aðgang allra þjóðfélagsþegna að menntun og að fatlaðir séu virkir þátttakendur í samfélaginu.”

Táknmál sem valgrein í Kennaraskólanum

Að sögn Davíðs mun Þróunarsamvinnustofnun einnig næstu tvö árin styðja Kennaraskólann í Windhoek í viðleitni hans við að bjóða táknmál sem valgrein fyrir kennaranema. “Ljóst er að slík námsleið getur skilað miklu í menntun heyrnalausra barna í  Namibíu,” segir hann. “Oft hefur komið upp sú staða að kennarar sem hefja störf í skólum fyrir heyrnalausa kunna hvorki skil á táknmáli né hafa nokkra innsýn í málefni þeirra. Kennaranemar munu nú eiga þess kost að sérhæfa sig í táknmáli, túlkun og menningu heyrnarlausra og verða þannig mun færari að takast á við kennslu í skólum landsins sem sinna menntun heyrnarlausra barna. Stuðningur þessi mun standa í tvö ár en að þeim tíma liðnum mun skólinn taka yfir verkefnið að fullu. Meirihluti heyrnarlausra barna í Namibíu hefur enn ekki aðgang að grunnmenntun, en vonir standa til að fleiri skólar í landinu muni á komandi árum bjóða þeim möguleika á námi, og þá er mikilvægt að til staðar séu kennarar sem eru í stakk búnir að sinna kennslunni á faglegum nótum,” segir Davíð.

Að lokum má geta þess að Þróunarsamvinnustofnun mun starfa með og styðja verknámsmiðstöðina COSDEC í Rundu, bæ í norðaustur Namibíu, sem mun nú í fyrsta skipti geta veitt heyrnarlausum aðgang að verknámi. Að sögn Davíðs er um tilraunaverkefni að ræða sem vonir standa til að megi útfæra í fleiri bæjum þar sem COSDEC verknámsmiðstöðvar starfa.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica