Stuðningur við heilbrigðismál í Monkey Bay (Mangochi héraði)

Heiti verkefnis – svið:

Stuðningur við heilbrigðismál í heilsuumdæmi Monkey Bay svæðis í Mangochi héraði í Malaví.

Samningur og samstarfsaðilar:

Þróunarsamvinnustofnun Íslands undirritaði samning við heilbrigðisráðuneytið í Malaví í júní 2000 um aðgerðaráætlun fyrir stuðning við uppbyggingu heilbrigðisþjónustu í Monkey Bay í Mangochi héraði. Fyrsta áætlun náði til ársloka árið 2003. Önnur áætlun var frá ársbyrjun 2004 til júlí 2007. Óháðir úttektaraðilar á vegum samningsaðila hafa verið fengnir til að meta stöðu verkefnisins með tilliti til áframhalds.

Lýsing og markmið:

Megintilgangur verkefnisins er að byggja spítala og heilsugæslustöðvar á Monkey Bay heilbrigðissvæðinu, þ.e. spítala og heilsugæslustöð í Monkey Bay og heilsugæslustöð í Nankumba. Auk þess að sjá um byggingar við ofangreindar stöðvar sem eru ríkisreknar, er einnig stutt við heilsugæslu í Nkope, Nankwale og Malembo sem eru reknar af kristilegum samtökum.  

Stuðningur er í aðalatriðum tvíþættur, annars vegar uppbygging húsnæðis og hins vegar stuðningur við þjónustu, þjálfun og fræðslu.

Sjúkrahúsið við Monkey Bay þjónar svæði með 110.000 íbúum.

Framvinda:

Byggingar á spítalanum hófust árið 2000, fyrstu sjúklingar voru lagðir inn í júní 2002.  Byggð var almenn sjúkradeild, fæðingardeild, almenn göngudeild og skrifstofubygging.  Einnig var byggður bílskúr og líkhús.  Einnig hefur húsnæði fyrir skurðstofur verið byggð, sem og bygging fyrir rannsóknarstofur og göngudeildarhúsnæði fyrir HIV/AIDS meðferð.

Starfsemi hefur aukist jafnt og þétt frá ári til árs.  Umfangsmikil þjónusta er við fæðandi konur, almenna sjúklinga, börn og fullorðna auk göngudeildarþjónustu.  Þjónustan mun enn aukast þegar nýjar skurðstofur opna og rannsóknarstarfsemi verður efld.  Má segja að markmiði um að reka hér heilsugæslusjúkrahús (Monkey Bay Community Hospital) verði þá í flestu náð.

Úr ársskýrslu 2010

Sjúkrahússverkefnið í Monkey Bay hefur nú staðið í hartnær áratug og ÞSSÍ hefur byggt upp veglegt sveitasjúkrahús í bænum sem þjónar um 100 þúsund manna byggðarlagi. Miklar endurbætur urðu á árinu þegar glæsileg fæðingadeild var opnuð. Gamla aðstaðan var löngu of lítil og óhæft að hvað eftir annað urðu konur að fæða á gólfinu vegna þess að fæðingarbekkir voru of fáir. Þessi þróun er markvert innlegg í þá viðleitni að fækka dauðsföllum af barnsförum en tíðni þeirra er hæst í Malaví af öllum löndum þar sem ekki er stríðsástand. Að meðaltali deyja 16 konur á dag í landinu vegna erfiðleika sem upp koma í fæðingu. Umbætur í þessum efnum eru eitt af þúsaldarmarkmiðunum.

Á árinu hóf ÞSSÍ einnig byggingu annarrar fæðingardeildar í afskekktri sveit, Chilonga, sem ætlað er að þjóna um 20 þúsund manna byggð. Sú deild verður opnuð 2011 og heilsugæslustöð sem þar er endurbyggð.Á árinu hófust einnig endurbætur á gömlu fæðingardeildinni í Chilonga og verður þar samþætt heilsugæsluþjónusta við mæður með börn yngri en fimm ára, fjölskylduráðgjöf, sálgæsla og ráðgjöf um kynsjúkdóma. Þessi aðstaða verður tekin í notkun 2011.

ÞSSÍ styrkir rekstur sjúkrahússins að hluta til viðhalds og minniháttar rekstrarliða. Starfsmannanefnd á spítalanum ákveður hvernig þetta fé er nýtt og gerir um það áætlun í hverjum mánuði. Þessi framlög nýttust að hluta til að endurnýja sjúkrabíl sem lenti í óhappi. Þessi rekstrarstuðningur fjarar út á árinu 2011 sem er síðasta ár hins eiginlega sjúkrahússverkefnis.

Samtímis þessum framkvæmdum voru lögð drög að stefnumótun til framtíðar í lýðheilsumálum í Mangochi héraði og ætlunin er að það verkefni taki við af spítalaverkefninu í árslok 2011. Þessi stefnumótunarvinna hófst á árinu með samráðsfundum og viðræðum þar sem nú stefnir í að tímamót verði þegar eiginlegu spítalaverkefni lýkur árið 2011. Við tekur lýðheilsuverkefni á breiðari grunni. Undirbúningsvinna er því allmikil og hófst árið 2010.

Enginn íslenskur verkefnisstjóri hefur verið við spítalann síðan 2009 en umdæmisstjóri séð um samstarfið. Honum til halds og trausts hefur verið Geir Gunnlaugsson landlæknir sem ráðgjafi. Geir hefur tekið þátt í þróun verkefnisins frá upphafi. Heildarframlög ÞSSÍ til þessa verkefnis voru rúmlega 500 þúsund dali

 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica