Jarðhitaverkefni
Heiti verkefnis – svið:
Stuðningur við þekkingu í Jarðhitamálum - Geothermal Capacity Building Project (GCBP).
Orkumál.
Samningur og samstarfsaðilar:
Ráðuneyti orku- og námumála.
Lýsing og markmið:
Markmið verkefnisins er að auka nýtingu á jarðhita í Níkaragva.
Markmiðið er í sjálfu sér viðurkenning á því mikilvæga hlutverki sem ríkisstofnanir munu gegna í eflingu, þróun og eftirliti með jarðhita auðlindum Níkaragva.
Verkefninu er ætlað að skapa og styrkja getu landsins þannig að ríkisstofnanir sem koma að jarðhitamálum í landinu verði í stöðu til að verða við þeim skyldum sem að þeim snúa. Um leið greiðir þetta leið landsins að sjálfbærri þróun hvað varðar jarðhita auðlindir.
Samstarf við ÍSOR er stór þáttur verkefnisins.
Framvinda - úr ársskýrslu 2009:
Framkvæmd verkefnisins um uppbyggingu þekkingar í jarðhitamálum hélt áfram 2009 í samræmi við verkefnisskjalið og í samstarfi við helsta samstarfsaðila ÞSSÍ í Níkaragva, ráðuneyti orku- og námumála (MEM). Helsta markmið verkefnisins er að auka nýtingu jarðhita í Níkaragva með því að byggja upp þekkingu og færni innan þeirra ríkisstofnana sem koma að nýtingu jarðhitaauðlindanna í landinu.
Helstu viðfangsefnin á árinu 2009, sem féllu undir fyrsta verkþáttinn (tækniaðstoð), voru námstefnur er varða mat, endurskoðun og eftirlit vegna rannsókna á jarðhitanýtingu á jarðhitasvæðum og verkefni í Níkaragva er varða jarðfræði, jarðefnafræði og jarðeðlisfræði. Einnig var veitt tæknileg aðstoð vegna mats á gögnum um jarðhitaboranir og um forðaverkfræði. Rannsóknareining ráðuneytis orku- og námumála naut áfram tæknilegrar aðstoðar og fylgdar við rannsóknir á nýtingu á jarðhita á háhitasvæðum. Farið var í vettvangsferðir til að þjálfa starfsmenn frá jarðhitadeild UNAN-háskólans í León, og einnig frá einkafyrirtækjum sem sóttu sérstaklega um þátttöku. Á árinu var sérstakri athygli beint að tæknilegri aðstoð vegna kvörðunar á jarðefnarannsóknarstofu ráðuneytis orku- og námumála og við að koma á verkferlum og aðferðum við jarðefnagreiningu vatns- og gassýna. Sérfræðingur frá Íslenskum orkurannsóknum (ÍSOR) kenndi námskeiðið ásamt sérfræðingum frá LA GEO sem er jarðhitafyrirtæki með aðsetur í El Salvador. Samstarfsaðili ÞSSÍ í umhverfismálum jarðhitanýtingar er umhverfis- og auðlindaráðuneytið (MARENA) en tæknileg aðstoð í þágu þess fólst í undirbúningi almennra leiðbeininga um umhverfismat jarðhitauppbyggingar (EIA). Enn fremur hélt sérfræðingur frá Umhverfisstofnun námskeið og skilgreindi og forgangsraðaði ásamt tæknimönnum frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu því starfi sem ráðuneytið þarf að sinna á árinu 2010.
Annar þáttur verkefnisins varðar þjálfun og þekkingaruppbyggingu. Haldnar voru námstefnur og námskeið um eftirfarandi efni: berggreiningu, gagnagreiningu og gagnastjórnun, jarðhitaborun og forðaverkfræði. Að auki var haldið áfram þjálfun í notkun landupplýsingakerfa. Haldið var tveggja vikna fræðilegt og verklegt námskeið í Mexíkó. Þrír starfsmenn frá jarðefnarannsóknastofu ráðuneytis orku- og námumála tóku þátt í námskeiðinu sem og sérfræðingur frá UNAN-háskólanum í León. Efnið var jarðefnagreining og var námstefnunni stýrt af sérfræðingum frá jarðhitadeild Rafrannsóknastofnunar Mexíkó. Boðið var upp á bæði fræðilega og verklega kennslu á Los Azufres jarðhitasvæðinu í Mexíkó. Alls tóku um 50 sérfræðingar frá einkafyrirtækjum og opinberum stofnunum þátt í þessum námskeiðum og námsstefnum. Á árinu 2010 er helsta markmiðið að þjálfa starfsfólk stofnana ríksins sem sjá um hafa eftirlit með og fylgja eftir jarðhitaverkefnum. Allmargir starfsmenn ráðuneytis orku- og námumála héldu áfram enskunámi sínu. Einnig fjármagnaði ÞSSÍ þátttöku verkfræðings frá því ráðuneyti í starfi Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Afar mikilvæg starfsemi undir þessum verkþætti var vikulöng heimsókn fimm sérfræðinga frá Níkaragva til Íslands (þrír frá ráðuneyti orku- og námumála og tveir frá umhverfisráðuneyti). Í ferðinni fengu þeir tækifæri til að fara inn á jarðhitasvæði og heimsækja nokkrar stofnanir sem vinna að umhverfismálum og þróun jarðhitaverkefna á Íslandi.
Þriðji þáttur verkefnisins lýtur að grunnvirkjum og búnaði. Lokið var við byggingu jarðefnarannsóknarstofu við ráðuneyti orku- og námumála. Einnig var gengið í að útvega og setja upp búnað fyrir rannsóknarstofuna, s.s. gasgreini, jónagreini og frumeindagleypnimæli, auk minni búnaðar, s.s. vogir, kristalla og prófefni. Búnaðurinn hefur verið kvarðaður og fullgilding vegna aðferðarfræði við greiningar á sýnum á rannsóknarstofunni var hafin.
Fjórði og síðasti þátturinn varðar stjórnun og árangursmat. Samkvæmt verkefnisskjalinu átti ytri áfangaúttekt að fara fram síðla árs 2009. Stýrinefndin ákvað hins vegar að matið skyldi fara fram á öðrum ársfjórðungi ársins. Til verksins var ráðinn ráðgjafi frá El Salvador með viðamikla reynslu á sviði jarðhitaþróunar og yfirgripsmikla þekkingu á orkugeiranum í Níkaragva. Í áfangaúttektinni var gerð athugun á framvindu verkefnisins og þeim vandamálum sem höfðu komið upp við framkvæmd verkefnisins. Í kjölfar áfangaúttektarinnar ákvað stýrinefndin að gera breytingar á verkefninu til að bæta framkvæmd og almenna skilvirkni verkefnisins. Á árinu 2009 tókst að koma 94% verkefnisins til framkvæmda.
Áætluð verklok:
2012
Áhugavert:
Jarðhitamál - viðtal við Sighvat Björgvinsson framkvæmdastjóra ÞSSÍ, maí 2010



Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is