Srí Lanka

Samstarf Íslands og Srí Lanka

Sökum efnahagshrunsins á Íslandi árið 2008 var ákveðið að hætta þróunarsamvinnu við Srí lanka. Umdæmisskrifstofu ÞSSÍ og sendiráði Íslands í Colombo var lokað í júní 2009, en þá var öllum verkefnum ÞSSÍ í Srí Lanka lokið.

Srí Lanka

Srí Lanka er eyja undan austurströnd Indlands sem um aldir hefur laðað til sín ævintýramenn frá öllum heimshornum sökum fegurðar og menningarlegrar fjölbreytni. Í tvo áratugi dró hins vegar úr áhuga ferðamanna á landinu sökum ótryggs stjórnmálaástands og borgarastríðs sem geisaði í Tamílahéruðum í norður- og norðausturhluta landsins. Ófriðurinn hafði jafnframt neikvæð áhrif á samfélagsþróunina á Srí Lanka og varð efnahagslegt framskrið og iðnvæðing að sama skapi hægari en í nágrannalöndunum. Á þessu hafa þó orðið breytingar eftir að vopnahlé komst á milli stríðandi fylkinga árið 2002 og er vaxandi áhugi hjá alþjóðasamfélaginu og erlendum aðilum um að aðstoða stjórnvöld á Srí Lanka við uppbyggingu í landinu og koma á varanlegum friði. Þá hafa ferðamenn sýnt eyjunni vaxandi áhuga á síðustu árum og er vonast til að ekki líði á löngu uns Srí Lanka hefur náð aftur sínu fyrra aðdráttarafli.Sri_Lanka

Baráttan um völd hefur markað djúp spor í sögu Srí Lanka. Portúgalar og Hollendingar sölsuðu eyjuna undir sig hvor á eftir öðrum á 16. og 17. öld, Bretar fylgdu svo í kjölfarið og festu stjórn sína í sessi í lok 18. aldar og upphafi þeirrar 19. Hreyfing sjálfstæðissinna á Srí Lanka fór hins vegar að láta að sér kveða í upphafi 20. aldar og uppskar árangur erfiðis síns eftir margra áratuga umrót. Lýst var yfir sjálfstæði Srí Lanka 4. febrúar 1948, en landið tilheyrði þó eftir sem áður Breska samveldinu. Sjálfstæðið færði landsmönnum þó ekki frið og byggðist upp spenna í gegnum árin á milli tveggja þjóðarbrota, Sinhalesa annars vegar, sem eru í meirihluta, og minnihlutahóps Tamíla hins vegar. Ágreiningurinn reyndist það djúpstæður að út brutust átök á níunda áratug 20. aldar (í kringum 1980), sem stóðu í tvo áratugi, eða þar til friðarsamningur var undirritaður í febrúar 2002.

Þróunarsamvinna og uppbygging eftir hamfaraflóð

Srí Lanka er í hópi miðlungs þróaðra ríkja og eru helstu tekjulindir textíliðnaður, landbúnaður, fiskveiðar og skógarhögg. Einnig er ferðaþjónustan ört vaxandi atvinnugrein. Atvinnuuppbygging hefur verið hægari en í nágrannalöndunum vegna viðvarandi stríðsástands og hefur landið ekki þótt fýsilegur kostur fyrir erlendar fjárfestingar. Á þessu hafa orðið breytingar eftir að samið var um vopnahlé og nú er til að mynda fatsasaumur fyrir alþjóðlega framleiðendur mikilvæg útflutningsgrein. Aukinn áhugi er einnig hjá gjafalöndum og stofnunum að koma til móts við óskir stjórnvalda um aðstoð við þróun atvinnulífs í landinu, en áherslubreytingar urðu þó á þeim vettvangi eftir að hamfaraflóð dundu yfir sem fylgdu í kjölfar öflugs jarðskjálfta undan strönd Indónesíu á annan dag jóla 2004. Flóðin ollu mikilli skelfingu á Srí Lanka, dauða tugþúsunda íbúa landsins og gífurlegum skemmdum í strandbyggðum.

Fátæk fiskimannasamfélög urðu verst úti í náttúruhamförunum á Srí Lanka. Um 30 þúsund manns týndu lífi og 15 þúsund bátar eyðilögðust. Mannvirki við sjávarsíðuna voru hrifin á haf út og fótunum kippt undan þeim sem lifðu hamfarirnar af. Íslensk stjórnvöld tóku fljótt við sér og ákváðu í ársbyrjun 2005 að hækka framlög til þróunaraðstoðar á Srí Lanka um 50 milljónir, en stjórn ÞSSÍ hafði þá þegar tekið ákvörðun (2.des. 2004) um að ganga til samstarfs við landið um þróunarsamvinnu og verja til þess 25 milljónum króna. Í ljósi hækkunarinnar hefur ÞSSÍ því alls 75 milljónir til ráðstöfunar vegna uppbyggingarstarfs á Srí Lanka á árinu 2005. Að beiðni stjórnvalda á Srí Lanka var fyrirhugað að þróunarstarf stofnunarinnar yrði í fyrstu mest á sviði sjávarútvegs. Vegna náttúruhamfaranna urðu á því áherslubreytingar enda eru öll verkefni sem ÞSSÍ tekur að sér unnin á forsendum samstarfslandanna, í anda stefnu stjórnvalda þar og með hliðsjón að starfi annarra þróunarsamvinnustofnanna í landinu. Samningur um þróunarsamvinnu við Srí Lanka var undirritaður í Colombo, höfuðborg landsins, 23. júní 2005.

Greinar:

Þjónustumiðstöðvar styrkja fiskimannasamfélög (pdf) eftir Gunnar Þórðarson

 

Almennt:

  • Íbúafjöldi: 19,4 milljónir (UNDP 2007/08)
  • Höfuðborg: Colombo
  • Stærð landsins: 65,610 km
  • Stjórnarhættir: lýðræði
  • Helstu tungumál: sinhala, tamil, enska
  • Trúarbrögð: búddismi, hindúismi, islam, kristni
  • Lífslíkur (áætlað): 71 ár (kk), 77 ár (kvk) (UNDP 2007/08)
  • HDI: 99 (UNDP 2007/08) 
  • Læsi: 91,9%
  • VLF á mann (PPP): 4.696 bandaríkjadalir (EIU, 2009)
  • Fátækt, tekjur: <2 bandaríkjadalir/dag: 45,5%
  • Gjaldmiðill: rúpí
  • Helstu útflutningsafurðir/framleiðsla: fatnaður og textíll, te, eðalsteinar, hrágúmmí og kókoshnetur

  

Ýmsar upplýsingar um Srí Lanka - tenglar:

 

Fréttatenglar:

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica